Ferðasagan
þriðjudagur, janúar 29, 2008
Komum heim eftir strangt ferðalag á aðfaranótt sunnudags, mamma bauð okkur ferðalöngunum að koma við í T34 og gista þar. Svo við vorum ekki lengi að taka beygjuna upp að Rauðavatni enda rúmið í Skipholtinu uppfullt af fötum frá fimmtudeginum síðan ég hafði verið að reyna pakka niður.
Mér tókst með ótrúlegum hætti að gleyma jakkafötunum áður en lagt var í hann norður og svo að gleyma fartölvu/skólatöskunni minni fyrir norðan á Húsavík þegar við fórum í skyndingu suður eftir að hafa horft á veðurspána og flúið frá Húsavík.
Tókst þó að fá lánuð þessi fínu föt fyrir norðan (buxur númer 32 eða 30, á meðan ég nota buxur nr. 34 - 36). Sem ég tek auðvitað sem miklu hrósi, enda er bumban bersýnilega að hverfa smátt og smátt.
Allt ad gerast
laugardagur, janúar 26, 2008
Björg fékk ad komast að hjá Gunnellu og fékk líka þessa fínu klippingu. En hér erum vid nýkomin heim í ömmuhús á leiðinni að fá okkur bjór með þeirri gömlu
Húsavík
föstudagur, janúar 25, 2008
Holtavörduheidin
fimmtudagur, janúar 24, 2008
Styttist í brottför
Nú förum við að leggja í hann hvað úr hverju norður til Húsavíkur til þess að fara í jarðaför Jóns Árnasonar eða afa Jóns.
Fyrirhuguð brottför var kl. 1600 en þar sem áríðandi kall kom úr vinnunni hennar Bjargar varð hún að hlaupa til og láta mig um að pakka og lesta, svo undanfarnar klukkustundir hef ég verið með handfrjálsan í eyrunum tínandi til eftir kúnstarinnar reglum stjórnandans.
En planið er svo að koma við á bensínstöð áður en við leggjum í hann til þess að kaupa sitthvað til þess að narta í á leiðinni, og þá er ég að tala um nammi af „dönskum sið“.
Reyni að vera duglegur í farsímablogginu meðan á veru okkar stendur þarna fyrir norðan.
Kætrönner
mánudagur, janúar 14, 2008
Mér var boðið á "óvissustefnumót" í gær af henni Björgu.
Kom mér svona svakalega á óvart og bauða mér á Flugdrekahlauparann. Stóð svo fyllilega í þeirri í meiningu að hún væri ekki einu sinni búinn í framleiðslu þegar hún sýndi mér miðana í gær.
En mikið svakalega var hún góð, leikstjórinn fer vandlega eftir bókinni og flestöllum smáatriðum fylgt eftir.
Endilega skoða trailer hér
Annars byrjar skólinn með látum, svo það er ansi slæmt að hafa verið með flensu fyrstu vikuna. Svo nú er bara að fara horfa á hljóðfyrirlestrana sem teknir eru upp í þeim tímum sem ég missti af: sem er stuð.
Dæmi:
Kennari ,,...já, og einmitt þannig virkar pointerar í stacktrace"
Nemandi ,,já, en er...(þögn)..erfitt..(þögn)..hv..(eitthvað smá skvaldur)"
Kennari ,,Já nákvæmlega !! Og eimitt svona spurning gæti mjög líklega komið á prófi"
Ég (sem sit við vélina inn í miðjum lessal) ,,Frábært!!"
nu blev jeg syg
þriðjudagur, janúar 08, 2008
Eyddi næstum allri nóttinni inn á baði með höfuðið hálft ofan í klósettskálinni.. Held að gubbupest sé einn sá leiðinlegasti vírus sem um getur.