ENTOURAGE !!!
miðvikudagur, ágúst 22, 2007
Amk í öðrum hverjum mánuði hittumst við félagarnir heima hjá einhverjum okkar og horfum á c.a. 3 - 5 þætti af Entourage. Þættirnir eru í sjálfu sér ekki af bestu sort, en ávanabindandi nokk og alveg kjörnir í það að halda strákakvöld í kring um.
Hægt að kynna sér allt það hér
Á þessum kvöldum höfum við haft það fyrir reglu að gestgjafinn eldi rétt (sem ég reyndar byrjaði á á sýnum tíma) sem samanstendur af rjómaosti, salsasósu og osti, þetta auðvitað mixað í eldföstu móti og skellt í ofn á 170 gráður eða svo í 15min og étið með mexíkóskum flögum.
En svo var ákveðið að halda næsta Entourage - kvöld í nýju hýbýlum mínum, og stakk ég upp á því að vera með ísrétt, sem ég efast um að geti klikkað þar sem hann inniheldur t.a.m. Oreo kex. En félagar mínir eru ekki alveg að taka það í sátt. Svo þetta hefur gengið svo langt að Guðmundur nokkur Pálsson, meðlimur og einn af stofnendum Entourage - hópsins ætlar að skella í réttinn víðfræga heima hjá sér, keyra með ofnhanskana niður í Skipholt og bjóða upp á hinn hefðbundna rétt.