mánudagur, nóvember 27, 2006
Lokaverkefni
Er byrjaður í lokaverkefni þessarar annar, líst bara fjári vel á þetta allt saman, lenti í ágætis hóp það sem samanlagður aldur okkar nær ábyggilega vel að eða rétt yfir hundraðið.
Helgin var huggulegheit með öllu, ég kláraði prófin á föstudaginn, tók gott snatt um bæinn í leit að fullkominni afmælisgjöf handa minni sem hélt svo upp á það á laugardaginn. Um kvöldið var svo hið undursamlega Fimbulfamb dregið upp í húsakynum systur minnar, þar sem við spiluðum í rúma 4 tíma, gaman líka að segja frá því að þaðan rauk enginn út.
Sunnudagurinn tekinn svo bara í tjilli þar sem við Gunnar skelltum okkur í Hagkaup og létum Magna Supernova finna rækilega fyrir því í úlnliðnum við að gefa eiginhandaráritanir.
Kominn með eina einkunn á spjaldið..
7.0 í kerfisgreiningu !!
laugardagur, nóvember 25, 2006
Afmælisbarn
Í dag á afmæli besta, skemmtilegasta og fallegasta kona í öllum heiminum, hún er fyrst og fremst besti vinur minn auk þess að vera kærasta mín !!
Til hammara með ammara ástin mín..
þriðjudagur, nóvember 21, 2006
Hvernig er staðan ?
Og okkur var að bjóðast íbúð til leigu í febrúarbyrjun (downtown RVK).
Leggst undursamlega vel í mig, þó svo að það séu ágætislíkur á að við fáum inn hjá BN rétt eftir áramót. Íbúðin sem okkur bauðst er líka ódýrari, enda 3ja herbergja og miklu meira kósý, þar sem hún er undir súð.
En þar sem þetta er ekki alveg neglt, verður umsóknin ennþá á borði BN fram yfir áramót amk. Ófáar bílferðirnar sem farnar hafa verið í mibæinn, og ólíklegustu krókaleiðir sem maður tekur aðeins til þess að líta húsið augum og láta sig dreyma.
Aðeins eitt próf eftir hjá mér þar sem ég tek stærðfræðiprófið í sjúkrapróf.
Annars var hún nokkuð viðburðarík helgin, þessi líka rólegheitahópur sem við strákarnir myndum tvístraðist dálítið á laugardagskvöldið og það yfir fimbulfambi og kom til að menn ruku út í æsing.
warp(1)
feitl
<b>feitl</b>
Smá prufa úr nyjum síma Prufa úr Z550i
sunnudagur, nóvember 19, 2006
Smá prufa úr nyjum síma
Prufa úr Z550i
fimmtudagur, nóvember 16, 2006
Læridómur
Jahá..
hver hefði getað hugsar sér það að Motorola notfæri sér Two Address ISA skipanasett?
mánudagur, nóvember 13, 2006
Status Report
Klukkan fer að renna í 0300 að nóttu og ég er að læra undir próf í forritun sem er kl 0900 í fyrramálið, búinn að taka rúma viku í að læra undir það en finnst eins og ég hafi ekki komist yfir allt efnið.
Einhverntíma talaði ég um það að ég gæti ekki lært án lokuðu Sennheiser heddfónanna minna og fartölvu/ipod sem innber amk 20GB af tónlist, en þar hefur orðið breyting á, uppgvötaði eyrnatappana um daginn þegar ég var staddur inn á bókasafni.
Einbeitingin gríðarleg.
Er að hugsa um að segja þetta gott af lestri, sofna með krosslaggða fingur og vona það besta.
Svo.. ef þú ert ennþá á vappi núna og lest þetta þá máttu endilega bjalla í mig í fyrramálið og kanna hvort ég sé ekki alveg örugglega kominn á fætur.
föstudagur, nóvember 10, 2006
Bömmer
Hversu slappt er það að vera búinn að íhuga það vel og vandlega hvort maður ætti að festa kaup á PSP eða nýjum síma, kýla á fyrri kostinn en eyðileggja svo símann sinn daginn eftir ??
föstudagur, nóvember 03, 2006
Uppgjörið
Fyrir fáeinum árum þegar ég vann ásamt Gunnari Óla út í Breiðholtslaug 3. sumarið mitt í röð fengu Óli og Hannes vinnu í Fjölskyldu - og húsdýragarðinum.
Svo mikið var stuðið hjá þeim félögum að þeir gerðu sér lítið fyrir að þeir gerðu stuttmynd ásamt kolleigum sínum í garðinum sem sýnd var svo í lokapartyi garðsins.
Nema hvað, að Hannes gerði sér lítið fyrir um daginn og klippti myndina niður í þennan líka skuggalega flotta trailer sem ég get ekki annað en deilt með ykkur.
Gæti tekið einhvern tíma að loadast en það er hverrar sekúntu virði !