þriðjudagur, október 31, 2006
Gög & Gokke
sunnudagur, október 29, 2006
Skakkt bit
Hvað er málið með að ég fæ alltaf skakkt bit ?
Fórum í matarboð í gær og eftir smá stund var ég byrjaður að svitna yfir lærinu því svo mikill var verkurinn við að tyggja matinn (sem var b.t.w. ekkert smá góður, Björg og Þrúða eiga að vera löngu búnar að opna veitingastað).
Finnst eins og mér vanti bara eitt gott kjaftshögg beint á kjammann, myndi ábyggilega rétta við skekkjuna.
E.t.v. ég taki smá göngutúr um lesaðstöðuna og fari að snapa fæting við samnemendur mína..
miðvikudagur, október 25, 2006
Status Report
Þessa dagana get ég ekki hætt að hugsa um hvað mig langar að upplifa menntaskólaárin aftur. Fæ alveg fiðringin þegar ég geng fram hjá öllum krökkunum sem eru á leiðinni í tíma í MH, áhyggjuleysið skín hreinlega úr andlitum þeirra.
Úff, þessi ár..
þegar maður ákvað það kvöldið áður í hverju maður ætti að fara í skólann daginn eftir
drakk kaffi upp á lúkkið að gera
kom heim úr skólanum og gerði ekki neitt nema að slæpast með vinum sínum og hlakkaði jafn mikið til bjórkvöldsins eins og jólanna
þegar maður heyrði út undan sér að það yrði próf á daginn eftir sem gilti 20% af lokaeinkunn og sat í svitakófi að frumlesa allt sem átti að verða fyrir lokapróf viku seinna
þegar allir félagarnir í skólanum blogguðu og öll stemmningin á bak við það
öll afmælin sem við héldum í matsalnum
o.s.f.v.
Efnisorð: Skólinn
mánudagur, október 23, 2006
Bjartsýni
Hver er til í að skipta við mig á Powerbook G4 með Power PC örgjörva á móti nýrri, lítið notaðri MacBook Pro eða MacBook með Intel örgjörva ? Þoli ekki að geta ekki skipt yfir í Windows þegar mér hentar ! :@ (brjálaður kall)
Efnisorð: nörd
miðvikudagur, október 18, 2006
Aiiirwaves
Það er ekki nokkur spurning um það að ég eigi bestu tengdaforeldra í heimi !
Í dag, eftir að ég kom heim úr skólanum, búinn að vera þræða alla Airwavesdagsrána og fussast og sveiast yfir því að ég fari ekki á Airwaves í ár, aðalega vegna fjárskorts, þá réttir mín mér tvö rauð armbönd sem gilda á öll kvöldin og segir mér að þetta sé frá foteldrum sinum.
Mikið svakalega er ég sáttur við lífið núna.
En nú er bara að gefa almennilega í svo helgin verði stresslaus.
Takk æðislega Sirrý og Gummi !
Efnisorð: Airwaves
þriðjudagur, október 17, 2006
All and nothing
Byrjaður á 3. seríu Entourage þessa dagana og held að ég hafi ekki verið svona húkkt á einhverju sjónvarpsefni síðan ég kláraði 5. seríu af Shield.
Gjörsamlega heilalausir þættir en eru svo ávanabindandi að manni grunar að stærðarinnar nikótínskammti sé sprautað úr tölvunni um leið og maður styður á PLAY.
mánudagur, október 16, 2006
Leikfimi !
Í morgun hoppaði ég fram úr á slaginu 0545 í morgun og brunaði út í líkamsræktarstöð og hoppaði þar í rúman klukkutíma og hugsa að ég geri slíkt hið sama á morgun !
Er svo mættur út í skóla fyrir allar aldir að læra strjála stærðfræði.
Ójá.. Þetta kallast dugnaður !
fimmtudagur, október 12, 2006
Betan
Hér er fysta færslan á Blogger Beta !
Var að enda við að prófa að "svitsja" yfir í betuna.
Lítill munur svona fljótt á litið, en vonandi að það séu e-ir fleiri fítusar.
Til lukku ég !
Efnisorð: Beta
mánudagur, október 09, 2006
Fyrir Runa
Mikið svakalega sakna ég Runa !
og hér má finna glænýja sjónvarpsauglýsingu með þessum yndislega danska apa, ekki frá því að mig langi til Köpen þegar ég horfi á þessa auglýsingu.
miðvikudagur, október 04, 2006
systur
Nú segi ég eins og Gunniol, "ahh, ééég veiít það íkki" !
Heyrði útundan mér kunnulega tóna úr Tívolítæki Torfufellsins í gær, ég stóð upp og hækkaði aðeins, svo all hressilega þegar ég loksins kveikti á perunni.
Um var að ræða 3 söngkonur sem syngja í "stríðsára - stíl" að taka Smithslagið Panic.
Var ekki lengi að útvega mér disklingnum með þeim stöllum en er ekki alveg nógu ánægður, átti von á helling af hressum slögurum sem þær útsettu á "stríðsára - stíl.
En einu góðu lögin eru Panic, sem þær reyndar gera virkilega vel, öll gítarriffin sungin í "babba, rabba, bíbí o.s.f.v." og Blondie slagarann Heart of glass.
Kannske of miklar væntingar, og þó, fannst það óttalega hallærislegt að heyra fyrsta lagið sem er "Mr. Sandman"
þriðjudagur, október 03, 2006
Prófavertíð
Þá er hún hafin, þó aðeins miðannaprófin. Svona til þess að sjá hvar maður stendur. Hafa gengið svona la la. 2 búin af 4 en seinni tvö eiga vonandi eftir að ganga betur.
Annars sýnist mér ég þurfa að loka mig af næsta mánuðinn eða svo, strjála stærðfræðin að gera mér lífið leitt og þó undarlega megi virðast er forritunin eitthvað að gera mér lífið leitt þessa dagana.
Svo hefur músíkin gjersamlega bjargað mér þessa vertíðina (eins og svo margar aðrar), miklu verið importað og mikið á hlustað.
Er kominn með t.a.m. allt Cardigans safnið, kann mjög vel við nýjustu plötuna, nýjasta nýtt frá TV on the radio hefur einnig bæst við safnið, ekki alveg verið nógu duglegur að spila hana. Some Cities með Doves, alltaf langað í hana, enda búinn að renna alltof oft í gegn. Athelete, sem er eitthvað Indieband, óttalega flatt eitthvað, fílaðaiggi. En það sem hefur fengið hvað mesta spilun og á eftir að láta byrja rjúka úr tölvunni minni vegna ofspilunar er The Whitest Boy Alive, sem er eitthvað hliðarverkefni Erlend Øye, annars helmings Kings of Convenience.