mánudagur, maí 29, 2006
HAhahahah !!\\
Hef ekki getað unnið vegna hláturskasta í dag. Þessi síða er að gera útaf við mig !
Séð frá hægri: Hannes Þór, P.Svansson og Hjalti
föstudagur, maí 26, 2006
7 dagar\\\
Núna er rúm vika í að ég segi upp starfi mínu lausu hjá Símanum, hugsa að ég bjóði liðinu upp á íspinna eins og ég gerði á leikskólanum fyrir þónokkrum árum síðan.
Þá tekur við frí til 8.jún þar sem við gerum Sumarbúðirnar í Laugalandi tilbúnar.
Annars er ég óttalega þreyttur, missti af fundi, við skötuhjúin vorum á efri hæðinni að hnoða bollur fram eftir nóttu. En áður höfðum við verið að þrífa Hlaðhamrana hátt og lágt. Stúdentsveisla á laugardaginn !
Við Gunnar keyptum svo töff gjöf handa Björginni okkar í gær !
þriðjudagur, maí 23, 2006
aaand you're in !\\\
Dömur mínar og herrar, Brynjar Ýmir komst inn í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
mánudagur, maí 22, 2006
kærastan mín\\\
Hún kærasta mín kláraði stúdentsprófið í dag !
Til hamingju, besta besta kærasta í heimi...
þar hafið þið það..\\\
Meistarinn !
sunnudagur, maí 21, 2006
svooo sniðugur\\\
Og mér tókst að laga linkinn inn á myndaalbúmið mitt í hliðarslánni. Sem minnir mig á að ég þarf að vera duglegri að dæla inn á það.
laugardagur, maí 20, 2006
núll sjö\\\
Núna er ég búinn a ná í tvo síngla af The Garden, nýju plötunni með Zero 7 og mig langar ómótstæðilega í þessa plötu.
Líka svo assgoddi töff nafn sem annar þeirra meðlima ber.
fimmtudagur, maí 18, 2006
taco bell
Eyjólfur kolleigi minn ætti að verða sæmdur fálkaorðunni fyrir það að koma með rjúkandi heita rétti frá Taco Bell í vinnuna í dag. Hugsa að átaksplanið mitt myndi fara í hengla ef / þegar Taco Bell myndi / mun opna hér.
mánudagur, maí 15, 2006
hingað og ekki lengra\\\
Hugsa að ég taki Eyþór Arnalds mér til fyrirmyndar og hætti þessu, once it for all !
mánudagur, maí 01, 2006
<b>Gsmblog\\\</b>
Búin ad vera hörkuhelgi, byrjadi med grillveislu hjá tengdafólkinu á efri hædinni, laugardagurinn fór í matarbod í st59, fengum Ragnheidi í mat til okkar. Ég brunadi svo ásamt Gummap og óla í party heima hjá adda, og óli audvitad ad klára lögguskólann. Í gær fórum vid svo í matarbod til Ragnheidar, gourmet ! Trylltur dans á Kb og vorum svo ræst í morgunverdahladbord til Ragnheidar, pönnukökur m. sírópi og cool aid ! Held ad ég taki afslöppun á thetta sem eftir lifir dags..