fimmtudagur, október 31, 2002
Hér koma jólin..\\\
Mikið rosalega ætla ég að hafa það gott um Jólin...
Árni Púki\\\
Já, þó hann Árni Long sé kannske ekkert sérlega góður í stefsetningu þá er hann svei mér góður í öllu sem við kemur HTML-i ! Hann sá náttúrulega strax hvað var að hérna á síðunni (BoldDraslið) og sendi viðgerðaþjónustu Binni er inni mail og leiðbeinti þeim í gegnum þetta..!
Takk fyrir Árni.....aldrei að vita hvort maður sendi þér bara jólakort í þakklætisskyni þessi Jól.
miðvikudagur, október 30, 2002
Takk fyrir mig\\\
Mikið djöfull fer það í taugarnar á mér þegar fólk þakkar fyrir sig þegar það er að borða einhverstaðar þar sem það er búið að borga fyrir matinn sinn. Eins og um daginn fór ég á McDonald's, en þar var einhver eldri maður sem stóð upp frá borðinu sínu, gekk með bakkann í fötuna og kallaði svo inní afgreiðslu hátt og skilmerkilaga ..."takk krakkar, takk innilega fyrir mig" ! Ég meina, það er ekki eins og fólkið á Makkanum hafi verið að bjóða honum út að borða ! Algerlega tilgangslaust að þakka fyrir eitthvað sem maður er búinn að borga fyrir..!! Segjum frekar..."takk fyrir viðskiptin" !!
///Þessir fróðleiksmolar og kurteisisábendingar voru í boði Brynjars Ýmis
þriðjudagur, október 29, 2002
Púkaling\\\
Já, ég skellti mér á púkann sem les yfir texta á netinu ! Mikið rosalega er þetta sneddy (nú fer hann örugglega e-ð að böggast út af orðinu "sneddy" og bendir mér á að skrifa frekar sniðugt, snýta eða e-ð álíka) !! Annars veit ég ekki alveg hvað komið hefur fyrir síðuna mína....allt bara komið í BoldLetur !!
///Synd að herra Púki geti ekki ráðið bug á þessum vanda...!!
mánudagur, október 28, 2002
Ohh\\\
Svona auglýsingaherferðir leiðast mér...
Óska eftir einum púka takk///
Ég er ekki frá því að ég verði að fara versla mér eitt stykki stafsetningapúka...
Stikkfrí\\\
Leit við í Stikkfrí, eða ísbúðina hans Hebba í gærkvöldi ! Held að naggurinn sé einfaldlega ekki með öllu mjalla, allir ísréttirnir hans heita einhverjum fáránlegum nöfnum. T.d. heitir barnaísinn Olle, bragðarefurinn hjá honun heitir Stormurinn, einn ísrétturinn kallast Lostin....toppnum er svo náð með því að Aðalísrétturinnrétturinn hans heitir Mjukglass !
///þó er ísinn hjá honum helmingi betri en hjá þessari leiðinda ísbúð í Vesturbænum sem selur "Gamelldagsísinn" sem allir eru að tala um !!
laugardagur, október 26, 2002
HotDressing\\\
Uss, hvað ég elska Dressingsósuna útá Select...! Ef einhver veit hvar ég gæti keypt hana þá endilega láttu mig vita !!
Meistari að verkum\\\
Gef GunnaOl 10 stjörnur af 4 mögulegum fyrir þessa ótrúlegu pósu!!
föstudagur, október 25, 2002
AAfundir á næstunni\\\
Fór í fyrsta skiptið edrú á bjórkvöld hjá FB og skemmti mér konunglega ! Ljósmynararnir vildu ekki sleppa takinu af mér allt kvöldið og mest allur tíminn í pósur og aðrar skemmtilegar stellingar ! Þurfti þó að skjótast með gæsana heim....sem var frekar boring ! En það sem stóð uppúr var naggurinn á dansgólfinu sem ég er handviss um að sé sonur RonJeremys !!!
fimmtudagur, október 24, 2002
Ansans\\\
Það komst víst upp um mig í dag þegar Súsanna djammari með meiru sagði mér frá því að á tónleikunum með GusGus á Airwaves, þá hefði komið öll myndaserían hér að ofan á skjánum fyrir aftan bandið !
Nessi hressi\\\
Já, hann Steven Spielberg....nei, ég meinti Nessi hringdi í mig í kvöld og bað mig um að fylgjast með PoppTíví því þar væri verið að sýna eitthvað vídjó sem hann hafði verið að vinna að, því miður komst ég ekki að sjónvarpstæki þá en ætla að sjá þetta vídjó hjá honum á morgun !!
Kemur manni sífellt á óvart strákurinn...
Vídjóklikkhausinn að störfum...
miðvikudagur, október 23, 2002
Attention\\\
Nú er nýja GusGus breiðplatan, Attention komin í hús og mér lýst bara ágætlega á gripinn svona við fyrstu hlustun, þó að hún slái nú ekki Polydistortionplötunni við !
Gaman að fylgjast með því hvernig þessir meðlimir sem eftir urðu hafa reddað sér vel út úr þessu eftir að Daníel, Hafdís og Magnús gengu út úr bandinu...
þriðjudagur, október 22, 2002
Forðist eftirlíkingar\\\
Hélt að það væri nú ansi langt í það að maður myndi fara sjá eftirlíkingar hérna í bloggheiminum....þó fann ég eina í dag !! Lítið bara á...
mánudagur, október 21, 2002
PepsiBlue\\\
Var sá fyrsti sem keypti mér PepsiBlue útá Select í morgun ! Nýbúið var að raða flöskunum í standana þegar ég stormaði inn og keypti mér eina til að hafa með mér útá bókasafn ! Þetta á víst að vera alveg eins og venjulegt pepsí á bragðið en ég efast stórlega um það ! Er nú mikill kók - og pepsíþambara sjálfur og ætti að þekkja bragðið manna best ! Þetta var allaveana ekki þetta OrginalColabragðið sem maður þekkir úr svarta pepsíinu....ég held að ég gefi þessum nýja drykk barasta 1og 1/2 stjörnu af 4 mögulegum !
Frekar slakir þarna á vísindastofum pepsís verð ég að segja !
fimmtudagur, október 17, 2002
Siglufjörður\\\
Jæja, nú er menn ansi fúlir því í kvöld fer ég á æskuslóðir mínar eða til Siglufjarðar að læra fyrir blessuð einkaflugmannsprófin ! Verð þar þangað til á sunnud. ! Er assgoddi fúll yfir að missa af Airwaves...en það gerir ekkert til því ég kíki bara næsta ár og þá með einkaflugmannspróf í vasanum !
Sé ykkur seinna....yfir og út !!
föstudagur, október 11, 2002
RUV\\\
Spurning hversu margir krakkar eru að horfa á RUV núna því núna er Stöð2 að sýna Disneyteiknimyndana The Road to El Dorado á meðan RUV er að sýna Disneymyndina Nemó kafteinn sem er frá árinu 1962 og + það er hún með ensku tali....´
Það væri allaveana ekki spurning á hvað ég myndi horfa ef ég væri nokkrum árum yngri
fimmtudagur, október 10, 2002
Öndergránd\\\
Ætli ég gæti titlað mig sem undergroundbloggara ?
miðvikudagur, október 09, 2002
Nýr blogger í bænum\\\
Árna kynntist ég í nefndarferð FB 01' og nú er naggurinn bara byrjaður að blogga helvískur og kemst þess vegna í hinn alræmda linkabunka minn hér á síðunni...Til Hamingju Árni
þriðjudagur, október 08, 2002
Háður\\\
...þessum keiluleik er ég því miður orðinn háður !!
sunnudagur, október 06, 2002
gunniol.blogspot.com\\\
Ætli GunniOl eða Gajolið eins og ég kýs að kalla hann fari ekki að loka þessari blessuðu síðu sinni sem við Toggi eyðilögðum hérna um árið ?
Sjáið hana bara...-> Gunniol
laugardagur, október 05, 2002
1000 þakkir\\\
Hvað haldiði ? Tók eitt bloggsörf (skoða allar helstu bloggsíðurnar) áðan...og þegar ég er á KatrínEvu þá sé ég að ég er linkabunkanum hennar ! Ég held að ég geri það sama og smelli henni inn í minn ! Til Hamingju Katrín..!
föstudagur, október 04, 2002
Sea Change\\\
Var að dánlóda "aðallaginu" af nýju plötu Becks Hansens og ég varð bara fyrir vonbrigðum, hef alltaf verið mikill Beckari (sérstaklega af Mutationsplötunni) en núna varð ég bara fyrir vonbrigðum ! Mér fannst lagið bara grautlélegt en núna er ég að bíða eftir að næsti "hittari" komi í hús...við skulum bara bíða og sjá !!
fimmtudagur, október 03, 2002
Í kjallaranum...tsjú tsjú ahh\\\
Já, nú var ég að leggja lokahönd á veldið mitt hér í kjallaranum heima...var nefnilega að tengja ADSL-ið niður og allt komið í húrrandi sving !! Aldrei að vita hvort maður verði bara duglegri í blogginu eftir allt saman ! Hmm, Ha, Hmm...
En nú er ég farinn í "partyið" sem halda átti í Gustheimilinu en verður víst haldið í Þróttheimilinu