Ég er kominn heim í heiðardalinn
föstudagur, júní 20, 2008
Þá er maður loksins kominn heim eftir hreint ótrúlega langt ferðalag. Var farinn að sakna heimahagana eilítið. Var annars búinn að lofa myndum seinustu helgi, en það var einskonar „trikk" til þess að fullvissa Helgu um að við værum örugglega ekki á leiðinni til þeirra í Lundinn. Annars eru myndirnar allar komnar inn og hægt að nálgast þær á myndunum hér að neðan.
Ítalíuferðin var hreint út sagt geðveik. Gengið á hverjum degi frá 09 á morgnana til klukkan að verða 18 á kvöldin. Maður rétt náði að koma sér í sturtu og ný föt til þess að fara einhvert út að borða, var svo kominn strax eftir mat upp á herbergi í rot.
Lundarferðin heppnaðist einstaklega vel og er því að þakka að Gummi mágur minn er algjör hetja, tókst að plata Helgu alveg upp úr skónum og kom okkur hratt og örugglega með bestu leiðbeiningum í heimi frá Kastrup til Lundar.
Annars eru það bara myndirnar. Okkur tókst að fylla minniskort sem er 2GB að stærð rétt áður en við tókum stefnuna heim frá Lundi svo það er að af nógu að taka.
Úr albúminu: Gönguferð í Í... |
Úr albúminu: Heimsókn í Lu... |