Til Árna
föstudagur, maí 02, 2008
Árni, ég er hér. Var kominn með svaðalegan móral yfir þessu öllu saman. Málið var að ég ætlaði að reyna að svíkja lit með því að færa mig yfir á wordpress og nýta mér heimasvæðið í skólanum. En eftir mikið fikt og nokkrar vökunætur í lestri á php og wordpress leiðbeiningum komst ég að því að heimasvæðið í skólanum styður ekki php svo vantar mig hýsingu fyrir database. Svo það þarf að bíða betri tíma.
En hér er ég kominn aftur og back in business.
Ein færsla á dag og ekkert gefið eftir !!
Takk fyrir rassasparkið Árni, ómetanlegur stuðningur hér í bloggheimum.