Afbragð
miðvikudagur, maí 07, 2008
Byrjuðum að undirbúa matseldina fyrir kvöldmatinn upp úr 16 í dag þar sem það þurfti að koma við hér og þar til að finna rétta hráefnið auk þess að koma við í Máli og Menningu að kaupa eina kennslubók sem við höfum lengi haft augastað á.
Komum svo hingað heim og bjuggum til besta mat sem ég veit um.
Tilfinningin við það að kunna búa til sushi heima hjá sér finnst mér ekki ósvipað tilfinningunni og þegar ég plataði mömmu og pabba til þess að fá sér Soda Stream tæki. Sem var svo örugglega ekki ósvipað og að komast að því að úr öllum krönum heimilisins fari að renna Dr. Pepper.