Lessalsatferlisfræði
föstudagur, mars 28, 2008
Þessi lessalur sem ég eyði flest öllum stundum inn í ásamt rúmum 200 fleiri er örugglega besta efni sem hægt er að fá til þess að nota í lokaritgerð eða atferlisrannsókn.
Mér er minnisstætt eina nóttina þegar salurinn var nærrum því fullur af fólki og einhverri stúlku bregður svona fáranlega þegar vinkona hennar bankar í bakið á henni til þess að fá lánaðar glósur.
Salurinn tekur við sér, allir standa upp og líta í áttina að henni, horfa svo á hvorn annan en enginn segir neitt.
Alveg eins og áðan þegar vöruflutningabílstjórar keyrðu hérna fram hjá flautandi, þá stendur fólk upp, kíkir á gluggann og horfir á hvort annað án þess að segja neitt.