Hlaðin batterí
þriðjudagur, mars 25, 2008
Skelltum okkur norður á föstudagsmorgun eftir að hafa komið við í Stigahlíðinni í morgunverðarhlaðborði hjá Maríu og Þór.
Vorum komin uppúr 14 til Siglufjarðar þar sem var tekið á móti okkur með freyðivín og svo eldað svín.
Áttum meiriháttar góðan dag með mömmu og pabba í ömmuhúsi.
Brunuðum svo yfir Lágheiðina með Patrolinn fyrir framan okkur svona til öryggis.
Ókum svo frá Ólafsfirði til Húsavíkur og vorum komin til Bibbu ömmu upp úr 17. Földum þá snöggvast páskaeggin og spiluðum skrabbl alla helgina auk þess að gera sem minnst.
Svo það má með sanni segja að batteríin séu hlaðin og vel það og maður er ansi vel settur andlega fyrir komandi prófavertíð.
Myndir detta inn von bráðar..