Djammleiðis
fimmtudagur, mars 20, 2008
Þar sem ég er hættur að fá mér í tánna hef ég hér með ákveðið að birta albúm seinustu tveggja/þriggja djamma.
Það fyrsta er gamalt eða frá því 3. nóvember 2007 þegar við félagarnir hittumst á Vegamótum, pöntuðum okkur mat en aldrei bólaði á honum, þjónustan í kringum borðið okkar fór gjörsamlega úr skorðum og allt endaði þetta á því að rekstrarstjóri staðarins greip inn í og bauð okkur upp á allt það sem staðurinn bauð upp á. Sjaldan lent í öðru eins. Þær myndir er hægt að nálgast hér..
Annað í röðinni var ósköp penn vínardansleikur sem var á árshátíð tónlistadeildar LHÍ sem var haldin 2. febrúar síðastliðinn sem endaði þó á því að mér tókst að rífa buxurnar mínar og Björgu að hrufla á sér löppina þegar við vorum að leita að partyi sem okkur hafði verið boðið í. Það er hægt að nálgast hér..
OG þriðja og síðasta sem sló botninn í þetta allt saman var innflutningspartýið heima hjá GummaPáls, en þá samkundu var búið að hype-a alltof mikið og einhverjir stóðu að því að versla aðeins Vodka og Magic í það geim sem fór ansi illa í landann enda endaði þetta allt saman á því að baðherbergisinnréttinginn hjá Gumma greyinu, í nýju íbúðinni, hrundi eftir að tveir menn studdu sér/sátu við hana. En þær myndir er hægt að sjá hér..