Tryllitæki
þriðjudagur, nóvember 13, 2007
Fékk nýja símann minn sendan til mín í pósti í gær eftir að hafa þurft að bíða eftir honum í rúma viku, verslaði mér hann á Vefverslun Símans, sem er staðsett að ég held í Ármúla, sem er innan við 2km fjarlægð frá mér.
Held allavegana að næst fari ég barasta niður í verslun og heilsa upp á gamla kunningja í leiðinni. A.m.k. held ég að geri þetta ekki aftur, á agalega erfitt með að bíða sérstaklega þegar um nýjar græjur er um að ræða.
En síminn er flottur, með 3,2 MP myndavél sem og Xenon flassi, beintengdur við heimasíðuna mína svo hvar sem er ætti ég að geta tekið mynd sem með tveimur smellum er ég búinn að pósta á síðuna (sjá færslu hér að neðan).
Annars langar mig voðalega mikið að stofna aðgang á Flickr, alltaf dáðst af hönnun vefsins auk pælingunni á bakvið hann. En það kemur í ljós.
Jæja, ég ætla mér að byrja að gera hérna e-ð að viti. Og reyna ekki að detta í sama far og í gær þegar ég blótaði kennarann minn í sand og ösku því mér fannst vera farinn svo langt út fyrir efnið þegar ég fattaði svo eftir að hafa verið með glósurnar hans opnar úr 9. kafla en bókin var opin á kafla 10 og skildi ekki upp nér niður í þessu.