Er það helst...
föstudagur, október 12, 2007
Árni nokkur Long, vinur minn frá menntaskóla á tvífara vikunnar ef ekki barasta ársins á síðunni sinni í dag. Endilega að kanna það hér.
Fréttafíkillinn ég eyddi svo dágóðum tíma í það að hafa kveikt á bæði útvarpi og sjónvarpi til skiptis í gær, enda um rosalegt mál að ræða sem ég nenni ekki að fara út í hér.
A.m.k. held ég að það hafi ekki verið langt í að það að það hafi byrjað að rjúka úr fjölmiðlamælinum mínum sem ég þarf orðið að ganga með á mér alla daga.
Við Björg féllumst nefnilega á það að taka þátt í fjölmiðlakönnun hjá Capacent Gallup ekki fyrir svo löngu síðan. Tækið er á stærð við símboða sem maður þarf að ganga með á sér yfir daginn og setja svo í hleðslu á kvöldin, hann sendir svo upplýsingar til Capacent á nóttunni þar sem öll okkar fjölmiðlanotkunn okkar er skráð.
Fyrir þetta vinnum við okkur inn punkta sem við getum notað í að versla okkur JamieOliver eldhússett eða Capacent flíspeysur. Gaman að því..
Langar helst að geta komist í grunninn hjá þeim, þ.e. getað séð það e.t.v. vikulega hve mikið ég hef hlustað á ákveðnar útvarpsstöðvar eða hve mikinn tíma ég eyði í það. Ekki ósvipað og last.fm.
Jæja, fréttayfirlit í þann mund að hefjast, má ekki missa af því, sjáumst !!