Nánast í höfn
laugardagur, ágúst 25, 2007
Ætla að segja það gott héðan úr skólanum rétt fyrir 18, koma við í Ríkinu, versla nokkra kalda og svo ætlum við að taka upp úr nokkrum "SyndaKössum", sem eru þeir kassar sem hvað lengst hefur verið beðið með að taka uppúr vegna dótsins sem þeir innihalda (m.ö.o. : ,,hmm, á að fleygja þessu eða halda því" - dót).
Og þegar það er allt komið má segja að þetta sé orðið ágætt.
Gardínurnar fengu að fara upp í gær við mikinn fögnuð íbúanna, og væntanlega strákanna sem leggja stund á vélfræðinám við Fjöltækniskólann með að þurfa ekki að horfa á mig arkandi um á nærbuxunum á morgnanna. Og er það að stórum hluta tengdamóður minni að þakka hvernig það fór, en hún græjaði þær fyrir okkur með saumavélina að vopni.
Svo þá er bara að gera þetta "spikk'o span" því við eigum von á ekki nema 6 manns í mat annað kvöld.



