fimmtudagur, desember 28, 2006
Hátíð allra barna
Jólin eru búin að vera hreinlega himnesk.
Borðuðum heima í Torfufellinu á aðfangadagskvöld, skruppum svo yfir í Hlaðhamrana eftir að við opnuðum pakkana, þaðan svo í Dómkirkjuna í miðnæturmessu þar sem hlýtt var á Hamrahlíðakórinn og auðvitað Biskupinn okkar predika.
Á jóladag sóttum við 2 jólaboð heim sem varð til þess að neðsta talan á rauðu skyrtunni minni gaf sig af áti.
Fimbulfamb varið dregið upp í heimahögunum og spilað fram á nótt.
Annar í jólum var svo einstaklega heilsusamlegur þar sem við byrjuðum á því að mæta tengdaforeldrum mínum í Heiðmörkinni og fara svo í Bláa Lónið seinni partinn.
Trivial var svo dregið upp heima hjá Nessa þar sem nánast allur hópurinn hittist í penthousinu.
Í gær var okkur svo boðið í mat til Sunnu og Kalla, þar sem enn og aftur var tekið í Trivial eftir ótrúlega góða máltíð og gott vín.
Þolinmæðin entist ekki lengur en það að við enduðum öll inn í sófa með fæturnar upp í loftið að glápa á Office.
Annars bjargaði Pétur Örn jólunum að vissu leiti með skemmmtilegum tilþrifum kvöldið fyrir Þollák að mig minnir og fyrir að mæta galvaskrur með flakkara bróður síns sem á
endalaust mikið af efni.
Klikkaði hrillilega á því að vera óduglegur við að taka myndir af jólunum þrátt fyrir að hafa hana standby.
En annars voru þessi jól virkilega góð, og get ekki beðið eftir áramótum.