mánudagur, júlí 31, 2006
Á Klambratúni
Skelltum okkur við Gummi á Klambratún í gærkvöld. Virkilega skemmtilegir tónleikar. Þónokkuð mikil unglingadrykkja og þess háttar 17.júní stemmning. En þar sem þetta voru nú fríir útitónleikar var það nú ekki að trufla mann það sérstaklega mikið þó svo að bakpoki unglingsstelpu sem leiddi vinkonu sína slóst utan í mann. Eða lætin í Óla og félögum, rabbandi um "höstl" helgarinnar ofan í hljóða part Heysátunnar.
Fantafínir tónleikar í alla staði.
Sammála Gumma, það ætti að vera tónleikar hvern sunnudag á Miklatúni á sumrin.
laugardagur, júlí 29, 2006
Húmoristinn hann Pétur
Pétur vinur minn sem ég hitti örsjaldan en í þau skipti sem við hittumst er þrælgaman, smellti mjög fyndnri færslu á síðuna sína í dag sem fékk mig til þess að skella rækilega upp úr.
Ferðin til Ólafsvíkur
föstudagur, júlí 28, 2006
Nach Dautchland
Núna eru rúmir 4 tímar í brottför Bjargar til Frankfurt ásamt Hamrahlíðakórnum og enn er verið að pakka. Hefur gengið ágætlega svona framan af.
Svo nú verður soddan piparsveinalíf á mínum í eina viku eða svo !
Eða þar til ég skrepp út til Berlínar að hitta betri helminginn.
Eftirvæntingin er í hámarki !
miðvikudagur, júlí 26, 2006
myndir sumarsins
Myndavélin hefur verið duglega brúkuð í sumar og þýðir þá ekkert annað en að tæma af minniskortinu og búa til stafræn albúm.
Bý til þægileg shortcut, en auðvitað minni ég á sjálfa síðuna !
50ugs afmæli pápa
Eina útilega sumarsins
Frídagurinn góði
Hjaltagrill
...og meira á leiðinni !
...aaand im back
Er skelfilega veikur, nýkominn frá Laugalandi og að því kominn að byrja hósta blóði !
Lét verða að gömlum draumi sem ég hef lengi haft síðan í 9. bekk í sumar.
Læt þessa mynd nægja í kvöld, en meira á morgun !
laugardagur, júlí 01, 2006