fimmtudagur, ágúst 19, 2004
skyggni: ágætt\\\
Er að fara út til Rica í Lettlandi þann 6. !
Pabbi þarf að mæta á fund hjá skiltagerðafyrirtæki þarna úti og ég fæ að fljóta með. Tökum millilendingu á Kastrup og fáum að stoppa þar í 8 - 9 tíma í bakaleiðinni.
Hlakka til að taka kast á Strikinu.
Fékk símtal frá Bandaríkjafaranum í gær, honum heilsaðist vel og hafði það gott í Wasington, þar sem ég er ekki með símanr. hjá þeim skötuhjúum úti og msn-ið mitt er í hakki þá gat ég ekki náð í stundatöfluna þína óli, eflaust e-ar ógreiddar skuldir. Þú ert þó ennþá skráður í skólann, reddar þessu bara á mánud. ("úff hvað ég elska þessa bloggtækni)
Sá um að dreifa stundatöflum í gær, við Elvar og Daði héldum allir á kaffibolla merktan Reykjavíkurborg í annari meðan við réttum nýnemum stundatöflurnar sínar, eftir létt spjall við hvern og einn enduðum við á að bjóða þeim velkomin í skólann og við hlökkuðum til að kenna þeim ensku því við yrðum umsjónakennararnir þeirra.
Að lokum langar mig að útnefna Berglindi Rafns mann mánaðarins hér á síðunni fyrir að bjarga uppáhaldsjakkanum mínum um daginn eftir að ég hafði gleymt honum í partyi í Fossvoginum seinustu helgi.