mánudagur, júlí 05, 2004
Kaupæði, málæði, er þetta ekki brjálæði?\\\
Stjanaði heldur betur við sjálfan mig á útborgunardaginn enda góð summa sem löggð var inn á mig eftir erfiða og streitulausa vinnu júnímánaðar.
Var staddur í símanum að borga símreikning þegar ég kom auga á heldur betur sniðugt tæki, keypti það á staðnum og núna líður varla sú stund þar sem ég er ekki að hringja og ganga um kjallarann spjallandi við hina og þessa um ekki neitt, þannig að símreikningurinn fer örugglega hækkandi bráðlega, verð að kaupa mér eitthvað annað sniðugt svo ég fái leið á þessum speaker.
Réð óla í vinnu hjá mér á miðvikudeginum í seinustu viku, bað ritarann minn um að beina honum inn á skrifstofuna þar sem ég var tilbúinn með pappírana og spurningalistana. Það tók hann stuttan tíma að sannfæra mig um að hann væri samviskusamur starfskraftur svo ég réð hann á staðnum í hlutastarf.
Vorum mættir tímanlega kl. 0900 á laugardaginn upp á Höfðabakkann, skelltum okkur svo strax eftir vinnu ásamt GunnaOl og Stefáni, kærasta Heiðu, á Flúðir í bústaðinn hennar Dísu Vals. Var ekki lengi að sturta í mig Carlsbergdós, koma mér í skýluna og taka dýfu í pottinn.
Löggðum svo í hann 0830 og settum hraðamet.
Þessi vika verður í rólegri kanntinum + það að ég fæ frí næstu helgi sem er megageggjað stöff.