fimmtudagur, apríl 15, 2004
Bið að.. slæm heilsa\\\
Er veikur í dag, eða kannski ekki beint veikur, eflaust með c.a. 5 kommur.
Mætti samt í skólann en fékk þó að sleppa við leikfimi í fyrsta tíma.
Ég er búinn eða "við" öllu heldur, þessi örfáu sem ennþá eru í FB og tilheyra mínum gamla góða vinahahóp erum búin að missa borðið okkar. Krakkarnir af starfsdeildinni náðu einhvernveginn að hrekja okkur í burtu í dag og það endanlega. Svo núna er ég orðinn soddan borðamella sem er jú, alveg ok.
Náði mér í nýjasta N.E.R.D.diskinn í gærkvöldi, leyfði honum að lulla á meðan ég fór í smá bíltúr með Óla og Abby. Kem svo heim, set mér í stellingar, hækka alveg í botn en nei, hvert einasta lag á disknum var gallað, þó ekki í einhverju asnalegu formatti heldur bara gallað. Sendi privat message á strákinn sem ég náði í diskinn af og hellti mér yfir hann eins og mér einum er lagið.
Svo er gaman að segja frá því að hlutabréfið mitt í Flugleiðum sem ég keypti þegar ég var 10 ára skilaði mér arði í dag, en þann 11.03.2004 var haldinn aðalfundur og samþykkt að greiða hluthöfum arð vegna ársins 2003 sem nemur 30% af nafnverði hlutafjár.
...damn hvað ég á heima á Wallstreet. *hrollur*