þriðjudagur, mars 04, 2003
Ólrekstur\\\
Enn einu sinni tókst Óla að lenda í áreksti, var nú kominn á sinn eigin bíl sem við unnum hörðum höndum að gera sem fallegastann í gær. Settum á hann sportrendur, þrifum hann hágt og lágt og hvað eina tilheyrandi til að gera hann sem sportlegastann. En nú er gæsin dauð...! (Bílinn fékk það viðurnefni vegna asnalegu flautunnar sem hann er með) Annars ætti maður varla að ver hlægja að þessu því þetta var ansi alvarlegur árekstur, Óli var fluttur uppá spítala með sjúkrabíl með minniháttaráverka. Annars er það fyndna í þessu öllu saman að það var enginn annar en hann Gissur sem keyrði á hann !
SKÝRINGAMYND