mánudagur, júní 17, 2002
Þynnka sminka\\\
Oj, Oj, Oj, hvað ég er búin að vera blautur um helgina ! Fyrst var það ammælið hjá SelmuSælkera, svo var það partyið hjá UncleBens og varla tekin pása á milli ! Hinsvegar er ég nærrum fluttur inn til hans Nessa. Búin að vera þar alla helgina. Partyið í gær var alveg magnað, þar sem allir Fellararnir voru saman komnir og um leið og það kom einhver inn sem Fellararnir könnuðust ekkert við fór hnefinn á loft og lá við hópslagsmálum ! Enda aðal slagsmálahetjur Breiðholtsins mættar á svæðið !
///Annars endaði þetta allt saman bara ágætlega nema BleikaHöllin hans Hannesar er algerlega á hvolfi...!