miðvikudagur, maí 01, 2002
Lights, Camera...Action\\\
Jæja, í kvöld skelltum við Gummi okkur í bíó. Sáum Showtime, sem var svo sem ágætis mynd. Nema hvað, í lokin, þegar allir áhorfendurnir eru að standa upp og svona, voru sýnd mistök myndarinnar. Það einfaldlega hata ég!! Maður stendur uppúr sætinu sínuog heldur að myndin sé búin en Nei, myndin er ekki búin og maður veit varla hvort maður á að setjast aftur eða halda áfram að standa á meðan leikstjóri myndarinnar segir: "....and action"...leikarinn fer með einhverja erfiða setningu en mismælir sig svo....fer eitthvað að hlægja....og allt kamerukrúið hlær með...allt voða voða fyndið. Nei, mér finnst langt frá því að vera fyndið, og efast ég um að leikurunum finnist þetta eitthvað gaman því þeir eru náttúrulega að leika mistökin. Þeir eru kannski búnir að vera taka sama atriðið svona 30og eitthvað sinnum og þá stórefast ég um að það sé stutt í hláturinn. Annars var þetta ódýrasta bíóferð sem ég hef farið í, 400kall í bíó og frítt PopOgKók....Takk Elva!!
Með Fram Veginum....ég vil minna á blogsíðuna hans Gunnars Óla